25.04.2012 09:50
Sigurvegarar úr síðustu þraut eru
Grétar Þorgils úr 6 S.S. og Ásgeir Emil Ólason 9 G.J.
25.04.2012 09:31
Hæ
Núna er búið að draga úr réttum lausnum úr síðustu þrautinni. Rétt svar var 93 dagar í september vegna þess að það eru 9 stafir í september og þrír af þeim eru sérhljóðar.
Sigurvegararnir eru Grétar Þorgils úr 6 S.S. og Ásgeir Emil Ólason 9 G.J. Við óskum þeim til hamingju með vinningana sem komu frá Sparisjóði Vestmannaeyja.
Að lokum þökkum við fyrir þáttökuna og öllum fyrirtækjunum sem gáfu verðlaun.
Kveðja
16.04.2012 23:14
Þrautin kom inn á netið á föstudaginn og hafa mörg svör borist til skila. Hægt er að skila svari á oskar@grv.is eða með miða til ritara.
Gangi ykkur vel.
11.04.2012 09:17
Þraut 8 kemur á netið á föstudaginn og mun það vera síðasta þrautinn að þessu sinni. Sparisjóður Vestmannaeyja gefur verðlaun fyrir síðustu þrautina.
kveðja
19.03.2012 14:46
Núna er búið að draga úr réttum lausnum, það var ekki dregið á föstudaginn vegna þess hve margir skiluðu á síðustu stundu.
Sigurvegari á miðstigi var Ásta Björt og Karl Leó á unglingastigi. Óskum þeim til hamingju.
Næsta þraut kemur eftir viku, þeas næsta mánudag.
Kveðja
09.03.2012 13:49
Þraut 7 kominn.
Verðlaun að þessu sinni frá Flamingo, alltaf jafn glæsilegt úrvalið að fötum þar. Jafnt fyrir konur og kalla.
Skila svörum inn fyrir næsta föstudag.
kveðja
02.03.2012 12:34
Búið að draga úr réttum svörum fyrir þraut 6.


Á miðstigi var Róbert Aron dreginn og á unglingastigi Axel Freyr. Við óskum þeim að sjálfsögðu til hamingju.
Næsta þraut kemur eftir viku.
Kveðja.
20.02.2012 14:21
Halló
Núna er þraut númer 6 kominn. Íslandsbanki gefur verðlaun núna og eru þau mjög glæsileg. Taska,
usb-lykill, bíómiðar, gjafakort og vatnsbrúsi. Alveg eins verðlaun fyrir unglingastig og miðstig.
Svari skal skila eins og áður, til ritara eða með pósti á oskar@grv.is.
Svar við síðustu gátu var 15. Helmingurinn af því er 7,5 plús 0,5 gerir 8. Þá eru 7 eftir, helmingurinn af því er 3,5, plús 0,5 gerir 4. Þá eru eftir 3, helmingurinn af því er 1,5 plús 0,5 gerir 2. Þá eru eftir 1, helmingurinn af því er 0,5 plús 0,5 gerir 1 og þar með klárast lundarnir.
Kv. Stærðfræðikennarar.
15.02.2012 09:27
Núna er búið að draga úr réttum svörum fyrir þraut 5.
Frá miðstigi var Thelma Lind Þórarinsdóttir dreginn út og á unglingastigi var það Kristberg Gunnarsson. Þau fá bæði gjafakort að verðmæti 5000.- krónur frá Sölku.
Næsta þraut kemur á mánudaginn og ætlar Íslandsbanki að gefa næstu verðlaun.
Kveðja.
08.02.2012 14:27
Halló
Margir eru að lenda í vandræðum með þessa þraut. Því hefur verið ákveðið að gefa vísbendingu. Hún er að gott getur verið að byrja aftast, hvað ætli það séu margir lundar eftir þegar viðskiptavinur 4 kaupir sinn skammt. ATH hver einn og einasti viðskiptavinur gengur burt með heila lunda.
Kveðja Stærðfræðikennarar GRV
06.02.2012 07:37
Núna er þraut 5 kominn. Hægt að nálgast hana
hér.
Að þessu sinni ætlar tískuverslunin Salka að gefa verðlaun og eru þau 5000.- króna gjafabréf. Aðeins dregið úr réttum svörum og eins og áður ein verðlaun fyrir unglingastig og önnur fyrir miðstig. Hægt að skila svörum á
oskar@grv.is eða til ritara. Dregið verður mánudaginn 13. febrúar.
Kveðja stærðfræðikennarar.
01.02.2012 09:18
Búið er að draga verðlauna hafa fyrir þraut 4. Svarið var 9743 og voru 31 sem skiluðu inn réttu svari sem skiptist nokkuð jafnt milli miðstigs og unglingastigs. Dregið var úr réttum svörum af hlutlausum aðila.
Sigurvegari úr miðstigi er Bergþóra Ólöf Björgvinsdóttir 7 D.Þ.A.en úr unglingastiga var sigurvegarinn Ingvar Ingólfsson 8 Ó.J. Við óskum þeim að sjálfsögðu til hamingju.


Kveðja Stærðfræðikennarar
Ný þraut verður birt á föstudaginn 3. febrúar og þarf að skila svari fyrir 11. febrúar.
24.01.2012 13:29
Núna er þraut 4 kominn og má finna hana
hér.
Verðlaunin þetta skiptið eru gjafabréf frá 900 grillhús að verðmæti 5000 kr., tilvalið að fara með fjölskylduna út að borða eða jafnavel panta pítsuveislu heim. 900 er frábær veitingastaður sem býður uppá fjölbreyttan metseðil á sanngjörnu verði. Hádegistilboðin hjá þeim hafa slegið í gegn og er það eitthvað sem hægt er að mæla með.
Svör má skila á netfangið
oskar@grv.is eða þá í hólf hjá ritara. Munið að merkja svör með nafni og bekk.
kveðja stærðfræðikennarar.
ps. svo er gaman að segja frá því að samkvæmt vísindavefnum þá frýs ósaltað vatn við o gráður, en hvort það sé frost eður ei er kannski spurning með öðru svari.
12.01.2012 09:12
Gleðilegt ár og velkominn aftur til starfa.
Síðan mun halda áfram með þrautir eftir annarskiptinn 23. janúar og mun þá ný þraut koma daginn eftir.
Sigurvegarar úr síðustu þraut voru Sigurður úr 7 DÞA og Elliði úr 8 ÓJ.
Takk fyrir viðtökurnar, þær voru mjög góðar. Fyrir hverja þraut hefur að meðaltali 11% nemenda í Barnaskólanum skilað inn svari.
Kveðja stærðfræðikennarar
08.12.2011 21:58
Halló
Jæja nú er þraut 3 kominn á sinn stað og skil á lausnum er með sama sniði, annaðhvort á blaði til ritara eða að senda á oskar@grv.is.
Að þessu sinni er það Vinaminni sem ætlar að gefa vinninga og eru þeir ekki að verri endanum. Vinaminni gefur þeim nemendum sem dregnir verða út, gjafabréf á aðventukaffi fyrir 4 ( 2 fullorðna og 2 börn). Tveir vinningar í boði einn fyrir unglingastig og einn fyrir miðstig.
Vinaminni býður uppá frábærar kræsingar og glæsilegt aðventukaffi um helgar. Þar er tilvalið að fá sér kaffi og nýta sér þráðlausa internetið sem þar er í boði, hvort sem það er til að læra eða að hafa það huggulegt með fjölskyldu og vinum. Heimasíðan er
www.vinaminnakaffi.is